|
|
Aðalfundur Samorku föstudaginn 17. febrúar
24.01.2012
Aðalfundur Samorku verður haldinn á Grand Hótel Reykjavík föstudaginn 17. febrúar. Iðnaðarráðherra ávarpar opna dagskrá fundarins og þá mun Dr. Daði Már Kristófersson, dósent í auðlindahagfræði við Háskóla Íslands, flytja erindi um gjaldtöku, leigutíma og arðsemi orkunýtingar.
Lesa meira...
Rafmagnseftirlitsgjald tvöfaldað
22.12.2011
Alþingi samþykkti á dögunum (17. desember) frumvarp iðnaðarráðherra um tvöföldun á eftirlitsgjaldi með flutningsfyrirtæki og dreifiveitum raforku. Gjaldið skilaði á liðnu ári um 50 milljónum króna en mun því á næsta ári skila um 100 milljónum. Samorka benti í umsögn sinni um frumvarpið á að allur kostnaður sem lagður er á flutning og dreifingu raforku greiðist á endanum af kaupendum orkunnar.
Lesa meira...
Erindi af veitustjórafundi
02.12.2011
Á fjölsóttum veitustjórafundi Samorku voru flutt erindi um virkjanaframkvæmdir á Norðausturlandi, jarðskjálftavirkni við niðurdælingu jarðhitavökva og ný sveitarstjórnarlög. Erindin er að finna hér á vef Samorku.
Lesa meira...
Norðurorka færi heimild til reksturs á innra eftirlitskerfi fyrir sölumæla
02.12.2011
Á fjölsóttum veitustjórafundi Samorku fékk Norðurorka afhenta heimild Neytendastofu til reksturs á innra eftirlitskerfi fyrir sölumæla raforku og vatns (heitt og kalt). Áður hafa Orkubú Vestfjarða og RARIK fengið heimild sem snýr að raforkumælum. Sjá nánar á vef Norðurorku.
Haustfundur Jarðhitafélagsins 6. desember - Sérstaða jarðhitanýtingar á Íslandi
29.11.2011
Jarðhitafélag Íslands heldur haustfund sinn þriðjudaginn 6. desember, í Orkugarði að Grensásvegi, og hefst fundurinn kl. 13:00. Yfirskrift fundarins að þessu sinni er Sérstaða jarðhitanýtingar á Íslandi, og verður m.a. fjallað um stofnkostnað jarðvarmavirkjana, boranir, rannsóknir, klasasamstarf og aðkomu Íslendinga að jarðhitaverkefnum erlendis. Sjá dagskrá fundarins á vef Jarðhitafélagsins.
Flutningslínur í jörð – hærri raforkukostnaður
25.11.2011
Ef allt flutningskerfið yrði endurbyggt með jarðstrengjum yrði umframkostnaðurinn á bilinu 400-500 milljarðar króna. Afleiðingarnar af því yrðu augljóslega veruleg hækkun raforkukostnaðar um land allt og væntanlega miklar seinkanir á eflingu flutningskerfisins þar sem þess er helst þörf. Þetta er meðal þess sem fram kemur í grein Gústafs Adolfs Skúlasonar, aðstoðarframkvæmdastjóra Samorku, í Fréttablaðinu. Hann fjallar einnig um strengvæðingu dreifikerfisins en bendir á að á hærri spennu hafa jarðstrengir meiri og varanlegri umhverfisáhrif en loftlínur.
Lesa meira...
Hitaveitur spöruðu landsmönnum 2.420 milljarða – Óhagkvæmt að setja upp rennslismæla fyrir kalt vatn
15.11.2011
Uppsafnaður sparnaður Íslendinga af því að nota jarðvarma í stað olíu til húshitunar á árunum 1970-2010 er áætlaður um 2.420 milljarðar kr., að því er fram kemur í skýrslu Hagfræðistofnunar Háskóla Íslands um nýtingu vatns á Íslandi. Í skýrslunni er m.a. fjallað um mikla ferskvatnsnotkun hérlendis en að mati stofnunarinnar myndi það kosta allt að 2,5 milljarða króna að setja upp rennslismæla í öll íbúðarhús, í stað núverandi gjaldtökufyrirkomulags þar sem vatnsnotkun er víðast hvar áætluð út frá fasteignamati. Stofnunin metur það óvíst að uppsetning slíkra mæla yrði kostnaðarins virði.
Lesa meira...
Öflug nýsköpun í íslenskum orkuiðnaði
14.11.2011
Ásgeir Margeirsson, stjórnarformaður HS Orku, segir umtalsverða nýsköpun eiga sér stað í orkuiðnaði og á Íslandi sé mikil þörf fyrir vel menntaða sérfræðinga af ýmsu tagi. „Sem dæmi vil ég nefna að í orkuverum HS Orku í Svartsengi og á Reykjanesi hafa verið framkvæmd fjölmörg flókin verk og tæknimál leyst, á máta sem aldrei hefur verið gert áður, hvergi í veröldinni." Þetta kom m.a. fram á opnum fundi Samtaka atvinnulífsins (SA) um atvinnu- og efnahagsmál, þar sem kynnt var ný skýrsla SA, Rjúfum kyrrstöðuna. Leiðir til betri lífskjara. Sjá nánar á vef SA
|
|